Hvítur dvergschnauzer og pipar/salt Risaschnauzer
Ég kynntist Risa schnauzer í Þýskalandi á árunum 1986 og 1987. En í fyrstu var það einungis Schafer, Dobermann og Rottweiler sem heilluðu eina mest sem stór vinnuhundur. En þegar að fyrsti risinn heilsaði mér var ekki aftur snúið um draumategund sem vinnuhund. Stór, sjálfstæður, úthaldsgóður, frábært jafnaðargeð, sjálfsöruggur, óhræddur, þorinn og hugrakkur hundur sem var umfram allt mjög húsbóndahollur. Krefjandi tegund sem þurfti aga en mýkt á sama tíma í uppeldi.
Þetta heillaði allt saman og það var ekki aftur snúið með hvaða tegund skyldi verða fyrir valinu síðar á ævinni. Risa schnauzer er til í tveimur litaafbrigðum einlitur svartur og pipar/salt litur sem er stálgrár til ljósgrár með svarta grímu í andliti. Fyrstu risarnir sem við áttum voru svartir og komu frá Svartskeggsræktun. Það voru tvær tíkur úr sitthvoru gotinu. Hvorug tíkin er hjá okkur í dag. Svartskeggs Asian Star skipti um heimili vegna aðstæðna sem komu upp hjá okkur á þeim tíma. Svartskeggs Bubba Beauty þurfti að kveðja þennan heim þann 07.02.2008 vegna veikinda. Þessar tíkur munu alltaf eiga stað í okkar hjarta og minningum.
Einnig heillaði miniature schnauzer þó nokkuð mikið en þar sem við erum fyrir áskoranir í ræktun var hvíti dvergschnauzer fyrir valinu. Sá hvíti er mun styttra komin í ræktun en aðrir litir í dvergschnauzer og er enn frekar óslípaður í ræktun.
Við viljum rækta fram vinnuglaða hunda með ákveðið skap, stöðugleika í skapgerð, sjálfsöryggi, úthald í vinnu og umfram allt heilbrigða hunda sem veita eigendum sínum ánægju. Að okkar mati er dvergschnauzer jafn kröfuharður í hreyfingu og risa schnauzer.
Fyrstu hvítu dvergschnauzerarnir á Íslandi.
Svarthöfðaræktun flutti inn fyrstu hvítu dvergschnauzeranna á Íslandi 2007. Þeir koma frá 4 löndum. Caruso kemur frá Þýskalandi, Casper kemur frá Danmörku, Tobba frá Englandi og Zaphira frá Tékklandi. Undirbúningur við komu þeirra tók töluverðan tíma sem notaður var í að finna réttu hundanna sem myndu passa saman fyrir pörun. Því þetta eru stofnhundar fyrir litinn á Íslandi og er von okkar að þeir skili góðum einstaklingum í vinnu og sem heimilishundar. Meðeigandi hvítu dverganna er Klara Ágústa Símonardóttir sem lagði mikla vinnu í að skoða ættbækur og meta þær með tilliti til áætlaðar pörunar.
Anna D Hermannsdóttir.
Svarthöðfaræktun.
vefpóstur/ e-mail Svarthofdar@gmail.com gsm 694-3599, HS 565-5945