Efnisyfirlit

 

Kellingablaðið - Upphafssíða

Leiðari

ÁFRAM STELPUR! Þið getið það sem þið viljið með ákveðni og öryggi.

Við hjá Kellingablaðinu einbeitum okkur að því að sýna að konur í samfélaginu í dag eru að gera það gott þó að minna beri á þeim en körlunum. Hér getið þið lesið greinar um framúrskarandi konur í samfélaginu og kynþokkafulla “silfurrefi”. Einnig um hvað væri hægt að gera í kringum Kvennó í götum, hvernig á að komast í gegnum prófin, hvernig á að gæta að heilsunni og margt fleira.

Á líðandi skólaári finnst okkur eins og stelpur í framhaldsskólum hafi látið lítið fyrir sér fara og eigi það til að halda sig til baka. Gott dæmi eru kosningar innan nemendafélaga skólanna hér í nágrenni. Mun meira bar á strákum í framboðum og þá sérstaklega til stærstu embætta. Þó að stelpur hafi verið í framboði á móti þeim þá náðu þeir þó oftast meirihlutakosningu.

Einn góðkunnur samnemandi okkar kom með þá kenningu að vegna undarlegra kynjahlutfalla t.d. innan Kvennaskólans eigi staða stúlkna innan skólans það til að breytast. Strákarnir eru fáir og fá því óskerta athygli frá kvenpeningnum sem gerir það að verkum að sjálfsmynd þeirra og öryggi eykst. Hjá stelpum hins vegar minnka þessir þættir nema að þær berjist fyrir því að fá sína athygli.

Stelpur, er ekki kominn tími til að þið stígið upp og verið óhræddar við að vera þið sjálfar? Strákarnir eru 30% færri en þið en það lítur í raun út fyrir að vera öfugt. Viljiði að þetta haldi áfram svona? 

Stelpur nútímans verða að standa með kynsystrum sínum og sýna frumkvæði og hugrekki. Og þannig munum við sigra heiminn!!

Ásta Hulda Ármann & Silja Lind Haraldsdóttir

 

Að Kellingablaðinu standa nemendur í áfanganum Fjö303 í Kvennaskólanum í Reykjavík. Þær eru: Aðalheiður St. Guðmundsdóttir, Anna Margrét Gunnarsdóttir, Ásta Hulda Ármann, Elín Árnadóttir,Júlíana Kristín Jóhannsdóttir, Kristín Eygló Kristjánsdóttir,Oddný Silja Herdísardóttir og Silja Lind Haraldsdóttir

 

 

 
 Konur í Tónlist
 Kvikmyndir
 Hæð Leikara
 Stjörnuspá
 Reynslusaga
 Heimasíður
 Prófatíminn
 Tíska
 Afrekskonur  
 Yfirheyrsla
 Silfurrefir  
 Heilsumolar