Jaja kominn tími á smá blogg. Það er lítið búið að vera gerast hjá okkur og það fer að styttast óðum í að síðari önnin fari að klárast.
Bæði Svenni og Golli hyggjast á að skreppa heim í Ágúst og kíkja á Þjóðhátíð. Ekkert smá furðulegir gaukar.
Rósa kærastan hans Svenna kom hingað í fyrrakvöld og svo skruppu þau til Miami í gær ásamt öðrum íslendingum. Þau hugðust gista á hóteli þar en svo í morgun bankaði Svenni á dyrnar hjá okkur, þá hafði hann sofnað í taxa hjá vini sínum honum Breka. Breki hafði ákveðið að fara bara til baka til Naples með Svenna sofandi í bílnum.
Rósa er núna í Miami og skilur ekkert mikið í þessu.
En hún er núna á leiðinni til baka ásamt öðrum Íslendingum á bílnum hans Svenna.
Við erum orðnir virkari á myspaceunum okkar heldur en á þessari síðu.
Endilega kíkið þangað: Fáfnir, http://www.myspace.com/fl190 .
Golli, http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendid=141543205
Svenni: http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendid=141769350
Kveðja, Fáfnir.
http://www.carmex-kiss.de/index.php?meintanz=525684077671 Golli í ham.
http://picasaweb.google.com/Gollinn/BlandPoka og nýjar myndir.
Jebb ég var að henda inn nokkrum myndum inn:
http://picasaweb.google.com/Gollinn albúmið heitir bland í poka.
Endilega látið skoðanir ykkar í ljós hér fyrir neðan :)
Gollinn
Verð að skjóta inn smá grein sem að ég kom auga á á mbl.
Spurning hvort að Mile High klúbbum fjölgi ekki við þetta?
Veit ekki hvort að það sé sniðugt fyrir flugmenn að taka þetta, hlaupandi aftan í cabinu til þess að fara á klóstið, með bullandi boner án þess að taka eftir því nýkominn úr cockpittinu.
Farþegarnir gætu eitthvað mistúlkað það.
Hamstrar sem voru sprautaðir með smáum skammti af lyfinu voru 20-50% fljótari en hamstrar sem ekki fengu lyfið eftir að ljósið hjá þeim var slökkt sex tímum fyrr en venjulega, sem höfundar rannsóknarinnar segja jafngilda því að flogið sé í austur, til dæmis frá Vesturheimi til Evrópu.
Virka efnið í Viagra nefnist sidenafil, og kann það að „nýtast gegn dægurlotukvillum sem tengjast röskun á samstillingu við umhverfið,“ eins og til dæmis því að ná ekki að festa svefn, og aðlögun að breyttum birtutíma, segir í rannsókninni sem birt er í Proceedings of the National Academy of Sciences.
Rannsóknin var gerð við Þjóðarháskóla Argentínu í Buenos Aires. Lyfið hefur þau áhrif að draga úr magni ensíms í heilanum sem á þátt í að stýra dægursveiflunni, eða hinni svokölluðu líkamsklukku.